10.4.2007 | 01:08
Komið gott af bloggi hérna
Jæja, komið gott af bloggi hérna ! Mitt ævintýri búið !:)
Þakka ykkur tæpum 14.000 sem kíktuð á síðuna síðastliðinn mánuð.. þó auðvitað sami aðili sé oftar en einu sinni og oftar en 2svar ;)
kv.
Jón Gunnlaugur
Kvet ykkur svo til þess að fylgjast með Ungfrú Reykjavík á fimmtudaginn, er í dómnefnd og verður skemmtilegt að sitja þeim megin við borðið:)
http://www.ungfruisland.is/netkosning.php?idprel=26 hérna er hægt að kjósa í netkosningu!
5.4.2007 | 20:05
Íslenski fáninn
Þegar ég fór til Kína var okkur sagt að taka þjóðfánann okkar með...sem og ég gerði auðvitað! Rétt áður en ég lagði af stað heim var ég eitthvað að skoða fánann, flottur auðvitað... en það sem fór geðveikt í taugarnar á mér var að á honum stóð.. "made in Taiwan" persónulega finnst mér að það ætti að setja það í lög að ALLAVEGA íslenski fáninn skuli vera búinn til á íslandi... ég veit ekki hvort ég sé einn um þetta en finnst bara skandall að þjóðfáninn okkar skuli vera búinn til annarsstaðar vegna þess að það er eitthvað ódýrara... ef ég þarf að kaupa hann þá finnst mér alveg í lagi að borga 100kalli meira og vitandi það að hann sé ekki innfluttur frá Taiwan!!
Annars.. Gleðilega Páska pípol
4.4.2007 | 13:51
kominn heim
Jæja þá er maður kominn heim....
Magnað þetta seinasta kvöld þarna úti... ansi margir sem opnuðu sig og viðurkenndu hina ýmsu hluti... flest sem kom mér virkilega á óvart.... en við erum að tala um ástarævintýri milli keppenda !!!! menn ljúgandi um aldur og vinnu.... úff.. .ég bara veit ekki hvort ég eigi að blogga um þetta... ætla að melta það aðeins..
hugsa að það sé einn kaldur í kvöld á Oliver og halda upp á að þessi ferð sé búin...
Annars bara áfram MANU í kvöld...
Gulli
1.4.2007 | 09:15
Vantar ykkur eitthvað??
Flestir farnir af hótelinu og er frekar tómlegt hérna!
Ég skellti mér einn í bæinn áðan, frekar spes að vera allt í einu bara með sjálfum sér vitandi það að ekki nokkur maður í kringum þig tali ensku... hvað þá íslensku!!
Ég var röltandi um verslunargötu/moll þarna og voru ófáir sem horfðu á eftir mér.. ekkert útaf keppninni endilega heldur frekar út af því að ég var örugglega meter hærri en næsti maður... og auðvitað hvítari en allt og ljóst hár!! Þetta var eiginlega í fyrsta skipti sem mér leið einsog algjörum risa og einhverra hluta vegna fór ég að haga mér þannig.. ég fór að hreyfa mig hægar...labba hæga og hreyfa hendurnar hægar... sem var alveg magnað:)
Labbandi um í mollinu og sá þar hund.. inni... ég hugsaði með mér hvað ef hundurinn tekur upp á því að skíta á gólfið.... ég eitthvað að skoða hundinn.... sé ég ekki bara að það var búið að teipa fyrir rassgatið á honum!!! WTF .. í bókstaflegri merkingu var teipað þannig að hann gat bara ekki með nokkru móti gert þarfir sýnar þarna inni !!! Eigandanum örugglega fundist þetta snilldar lausn!!
Allavega þá er maður kominn aftur upp á hótel í algjöra afslöppun, flugið mitt er ekki fyrr en annað kvöld og flýg ég svona :
Sanya - Hong Kong 20:55 - 22:30
Hong Kong - Beijing 03:25-06:35
Beijing - Copenhagen 14:55-18:30 (tímamismunurinn.. er hérna í +8 tímum)
Copenhagen - Keflavík 19:45-20:55
Annars hef ég heyrt að Hong Kong sé hrikalega ódýrt og ætla ég að reyna að kaupa eitthvað þar... ég ætla að opna fyrir kommentin hérna ... þannig að ef ykkur vantar eitthvað þá getiði endilega skrifað það í komment og ég skal reyna að finna það... án djóks... það er lítið mál!!
Annars vill ég auðvitað þakka Next fyrir fötin sem ég fékk, Sportís fyrir íþróttafatnaðinn, Ella í Kompaníinu fyrir klippingarnar og Örra vini mínum fyrir að nenna að koma með mér í gymið!:)
Gulli
31.3.2007 | 15:58
Úrslitin
ÉG ÁTTI AÐ VINNA ÞETTA!!! DJÖFULSINS KLÍKUSKAPUR OG VITLEYSA !!!
hehe neinei.. jæja þá er ævintýrið á enda !!
Ég komst ekki í topp 12 og endaði því í 13-44 sæti:)
Spánn vann þetta... sem fáir bjuggust við en er samt sem áður ágætlega að titlinum kominn !
Kína í öðru... já var ég búnað segja að þetta er haldið í kína og þau gerðu nýlega samning um að þetta yrði hérna næstu árin ?:)
Brazil í 3 sæti
Annars var topp 12 hópurinn svona :
Costa Rica, Kína, Puerto Rico, Brazil, Chile, Nigeria, Indland, Libanon, Ukranía, Austuríki, Spánn, suður afríka...
Þetta er náttúrulega búið að vera óendanlega gaman og þvílík upplifun! Vonirnar sem ég gerði mér fyrir þessa ferð voru litlar sem engar... ég er nú ekki svo vitlaus að halda að ég sé eitthvað súpermódel... en undir lokinn var maður auðvitað að gæla við að laumast kannski inn í 12 sæti á karakternum... en annað kom á daginn og er ég auðvitað engan veginn ósáttur með það :)
Það sem gleður mig eiginlega meira.. og maður hljómar kannski lélegur að segja þetta.. en það er að 2 ákveðnir einstaklingar komust ekki áfram.. þessir sem voru með hrikalega stæla... labbandi um einsog þeir áttu staðinn, troðandi sér fremst á myndir og síðast en ekki síst sleikjandi upp stjórendur hérna einsog þeir ættu lífið að leysa !!:) múhahahahahaha
jæja... það er stórt partý að fara að byrja niðri !!
adios pípol
Gulli
Það sem kom mér samt á óvart var að eftir keppnina þá voru um 10 strákar sem grétu úr sér augun!! WTF
29.3.2007 | 16:41
:)
Ég eiginlega bara verð að segja ykkur frá einu atviki !! Fyrir utan það að vera nýkominn upp á hótel eftir frekar langan dag (klukkan er 12 að kvöldi) þá verð ég að deila þessu með ykkur...
Við vorum upp í höll að æfa eins og fyrri daginn... ég sé þar Herra Búlgaríu labbandi hálf furðulega um, hann var semsagt alltaf að horfa á þetta flottu skó sína.. æji þið vitið hvað ég á við þegar krakkar eru nýbúnir að fá nýja skó... þá labba þau og horfa á skóna um leið... hann var allavega þannig!!:) Fyrir utan það að þetta sé alveg merkilega týpa, hann er venjulega bara í hermannafötum.. hvort sem það sé skær-bleikt eða skær-gult þá er þetta allt í hermannalitunum!! Allavega... go on Gulli..
Hann situr þarna rétt hjá mér á meðan við vorum í pásunni... ég lít eitthvað á hann og horfi á þessa merkilegu skó og sé að það eru einhverjir takkar sem standa út.. ég labba nær og horfi á þá... lýt á hann og segi... "heyrðu þú ert í golf-skóm" ... Hann svarar "NEI".... jú þú ert víst í golfskóm.. þetta eru takkar sem halda þér í grasinu... þú átt held ég ekkert að vera á svona skóm inni!! NEI þetta eru ekki golf skór... ég náttúrulega gat ekki haldið lengur í mér og gjörsamlega sprakk úr hlátri.. þið vitið hvernig ég er þegar mér finnst eitthvað fyndið.. ég var þannig sinnum 2!!! Drengurinn hafði þá um daginn keypt sér golf skó.. og af einhverjum óskiljanlegum ástæðum hélt hann að þetta væri jahh.. ný týpa af skóm :) hehehheehehheeheh...
Ég hef nú ekkert talað mikið við hann og virðist þessi strákur vera mjög fínn og brosmildur.. en hann var allavega grafalvarlegur þegar ég byrjaði að hlæja... :) hehehhe úff...
General prufan á morgun... spenna í gangi:)
Læt heyra í mér annað kvöld!
Gulli
- eitt enn.. keppnin er ekki sýnd "live" heldur er almennur sýningardagur 7 apríl! Hvort skjár einn ætli að sýna þetta eða einhver önnur stöð veit ég ekki... allavega eru keppnishaldarar búnir að ákveða að gefa fríann rétt til að sýna frá keppninni í ár þannig að það hlýtur einhver að sýna frá þessu!
29.3.2007 | 03:35
Dómaraviðtalið
Jæja var að koma upp eftir dómaraviðtalið! Úff ekkert smá stressaður... fórum 3 inn í einu, ég var með Írlandi og Indlandi! Við höfðum kannski 4 mín í heild og áttum við bara að tala um okkur sjálfa, ég talaði að vísu örugglega í alveg 2 mín en held þetta hafi bara gengið nokkuð vel... eitthvað punktað niður og þess háttar..... frekar gott að þetta sé búið!! Auðvitað veit maður ekkert hvað dómararnir vildu, ekki einsog maður fari oft inn í herbergi með 7 dómurum sem stara á þig þegar þú talar!:)
Núna tekur bara við general prufan á morgun og lokakvöldið á laugardaginn!
Ætlaði bara að smella inn stuttu bloggi....
Gulli
27.3.2007 | 10:44
hársléttun, matarboð og æfingar
Dagurinn í gær var mjög fínn, byrjaði á að vakna kl 8 til að fara í tai chi eftir það fóru þeir sem þurftu eitthvað að láta laga hárið á sér í bæinn og á rakarastofu... þar voru auðvitað fullt af myndavélum og starfsfólkið 3mannað í hverja stöðu.. ég þurfti að láta raka á mér hálsinn og ekkert meira en það...
meðan ég beið fékk ég nudd.. sem var sweet.. síðan hárið þvegið og hálsinn rakaður... eftir það byrjaði að blása á mér hárið og slétta með greiðu
...
Þið vitið hvernig þessir fiskar eru sem blása út þegar þeir verða stressaðir...fiskurinn eins og í "finding nemo"... jújú ég var alveg eins og hann... alveg hræðilegt...
ég bað þulinn vinsamlegast að biðja hann að hætta og síðan keypti ég gel og reyndi að ná hárinu niður.. sem tók ekkert svakalega vel!!
Upp á hótel og strax í sturtu... síðan var haldið í matarboð þar sem gestir þurftu að kaupa sig inn á borðin okkar.. fyrir að ég held um 50 dollara.. það var alveg stappað þarna og mjög fínt, vorum 3 keppendur á hverju borði og síðan um 6-8 kínverjar! Upp á hótel um 10 og beint að sofa...
Í dag var vaknað kl 6, tai chi rétt fyrir 7 og síðan upp í höll um 9 leytið þar sem lokakvöldið er haldið! Ágætis höll, þetta á eftir að koma mjög vel út í sjónvarpi.. en við komum allavega 4 sinnum fram! Er núna í 2 tíma pásu.. kl 7 byrjar stressið aftur til kl 10...æfa æfa æfa..
...ég þarf svo ekkert að taka það fram að ég tók auðvitað ekki þátt í talent showinu.. og er ekkert viss hvort það sé til dans sem heitir kjúklingadans....
jæja.. góður í bili
Gulli
- reyndi að henda inn myndum en það gekk ekki.. reyni að uppfæra þetta blogg í kvöld með myndum...
25.3.2007 | 01:02
Talent Show
Í gær var talent showið og tóku 20 strákar þátt! Allt frá söng, dans og í vínsmökkun sem mér fannst mjög spes að skuli hafa verið þarna með!! En auðvitað tók ég þátt :
Ég dansaði kjúklingadansinn sem fór mjög vel í dómnefndina þangað til ég leit á "heimskortið" bakvið mig og sá....
að það vantaði eina litla eyju á kortið... ÍSLAND... ég ekki sáttur og strunsaði af sviðinu í fússi:)
Annars var þetta mjög vel heppnað kvöld, margir þjóðdansar sem var gaman að horfa á..
Enginn sigurvegari var tilkynntur en þetta gaf ekki sæti í úrslitunum og því sanngjarnast að halda því bara fyrir sjálfan sig hvern maður hefði kosið...
ég og herra Víetnam... hann dansaði einmitt mjög spes dans!!
Við erum byrjaðir að æfa fyrir lokakvöldið sem verður haldið á sama stað og undanfarin ár, man ekki alveg hvað höllin heitir... en ég smelli myndum af henni þegar við förum að mæta þangað á æfingar....
jæja... er off í bili.. eigum að mæta og æfa rútínuna okkar:)... já og ég ætla svo á morgun eða hinn að spurja ykkur álits í hvaða jakkafötum ég á að fara.. eða öllu heldur í hvaða skyrtu og bindi... jakkafötin eru auðvitað frá NEXT ;)
herra Curacao, Ísland að sjálfsögðu, Norður Írland og Írland fyrir framan
Gulli
23.3.2007 | 12:27
Dragonboat race
Vöknuðum snemma að venju og keyrðum með rútu í ca. hálftíma að ánni hérna í sanya! Þar var liðakeppni í róðri eða Dragonboats, frekar mikið púl og frekar mikið stuð. Aftan á hverjum bát var kínverji sem lamdi í trommur og áttum við að róa í takt við þær...
Við lentum í öðru sæti og stöndum bara vel að vígi fyrir loka-liðakeppnina sem er kung fu. Síðan var haldið aftur upp á hótel og ekkert plan eftir hádegi. Á morgun er síðan talent show keppnin og okkur sagt að það verði partý og grill á dagskránni... sem er náttúrulega bara stuð!
Liðið mitt fór um daginn í fjórhjólaferð, en hvert lið fær eina "skemmtiferð" og var þetta okkar... allir fóru á fjórhjól og dune-buggy. Mikið stuð og gaman, keyrðum meðfram ströndinni og fengum skýr fyrirmæli að keyra ekki út í sjó... hr.barbados tóks að keyra fjórhjólið sitt á bólakaf í sjóinn á 2 mín. sagðist hafa ætlað að beygja til vinstri en beygði óvart til hægri:) En við skelltum okkur síðan 2 saman á eitt hjól.. hann sagði eitt fyndnasta komment sem ég hef heyrt þegar ég sýndi honum mynd af okkur...
"Vá hvað ég er svartur, ég sé ekki sjálfann mig.. ég bara hverf inn í bolinn þinn... heppinn ég að hafa verið með opinn munninn og séð tennurnar:) "
8 dagar í úrslitakvöldið... :) Þetta er fljótt að koma allt saman... fengum í dag lista hvað við þyrftum eða vildum að fara í... naglahreinsun, klippingu, meik... ég þarf náttúrulega ekkert að fara í klippingu enda hef ég bara treyst einni manneskju í hárið á mér undanfarin ár... en það er auðvitað ELLI HJÁ KOMPANÍINU í ármúlanum.. án þess að ég sé að henda einhverjum auglýsingum hérna inn
jæja.. off í bili
Gulli
Um bloggið
Jón Gunnlaugur Viggósson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.3.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 30232
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar









