hársléttun, matarboð og æfingar

 

 Dagurinn í gær var mjög fínn, byrjaði á að vakna kl 8 til að fara í tai chi eftir það fóru þeir sem þurftu eitthvað að láta laga hárið á sér í bæinn og á rakarastofu... þar voru auðvitað fullt af myndavélum og starfsfólkið 3mannað í hverja stöðu.. ég þurfti að láta raka á mér hálsinn og ekkert meira en það...

meðan ég beið fékk ég nudd.. sem var sweet.. síðan hárið þvegið og hálsinn rakaður... eftir það byrjaði að blása á mér hárið og slétta með greiðu Woundering...

Þið vitið hvernig þessir fiskar eru sem blása út þegar þeir verða stressaðir...fiskurinn eins og í "finding nemo"... jújú ég var alveg eins og hann... alveg hræðilegt...

ég bað þulinn vinsamlegast að biðja hann að hætta og síðan keypti ég gel og reyndi að ná hárinu niður.. sem tók ekkert svakalega vel!!

Upp á hótel og strax í sturtu... síðan var haldið í matarboð þar sem gestir þurftu að kaupa sig inn á borðin okkar.. fyrir að ég held um 50 dollara.. það var alveg stappað þarna og mjög fínt, vorum 3 keppendur á hverju borði og síðan um 6-8 kínverjar! Upp á hótel um 10 og beint að sofa...

Í dag var vaknað kl 6, tai chi rétt fyrir 7 og síðan upp í höll um 9 leytið þar sem lokakvöldið er haldið! Ágætis höll, þetta á eftir að koma mjög vel út í sjónvarpi.. en við komum allavega 4 sinnum fram! Er núna í 2 tíma pásu.. kl 7 byrjar stressið aftur til kl 10...æfa æfa æfa..

...ég þarf svo ekkert að taka það fram að ég tók auðvitað ekki þátt í talent showinu.. og er ekkert viss hvort það sé til dans sem heitir kjúklingadans....

jæja.. góður í bili

Gulli

 

 - reyndi að henda inn myndum en það gekk ekki.. reyni að uppfæra þetta blogg í kvöld með myndum...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Jón Gunnlaugur Viggósson

Höfundur

Jón Gunnlaugur Viggósson
Jón Gunnlaugur Viggósson
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • ...picture_005
  • ...picture_003
  • ...picture_004
  • ...picture_002
  • ...picture_001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 30230

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband